Jólagleði á Whales of Iceland

Hvalasafnið Whales of Iceland verður með öðruvísi jólaskemmtun fyrir alla fjölskylduna! 🎄❄️

🧜‍♀️ Hafmeyja og sjóræningi frá Prinsessur.is verða á staðnum að segja skemmtilegar jólasögur. Hægt verður að taka mynd af sér með sinni uppáhalds persónu.

🌈 Skynjunar leikur í boði Plánetunnar, upplifðu heiminn í gegnum skynfærin. Börnin munu skoða mismunandi áferðir og liti sem tengjast skilnigarvitunum.

📚 Rebekka Kent mun lesa uppúr nýju bókinni sinni “Fúli hvalurinn” ásamt því að spjalla við gesti og árita bókina sína. Auk þess geturðu búið til þitt eigið endurunnið hvalaskraut og lært hvers vegna endurvinnsla er svo mikilvæg fyrir sjávarvini okkar, eins og hvalinn í bókinni 🐋

Jólaskemmtunin fer fram bæði á íslensku og ensku svo allir geti notið jólagleðinnar.

🎟️ Við verðum með sérstakt hátíðarverð inná viðburðinn eða 50% afslátt af miðaverði inná hvalasafnið: aðeins 1.950 kr fyrir fullorðna, 975 kr fyrir börn 7-15 ára, og frítt undir 7 ára. Einnig verður í boði að kaupa fjölskyldu miða á 3.900 kr (gildir fyrir 2 fullorðna og 2 börn). Og að sjálfsögðu er aðgangur alltaf innifalinn með 10-skipta klippikortinu okkar!

Upplifðu ógleymanlega jólagleði með okkur á hvalasafninu Whales of Iceland. Það verður nóg um að vera og jólaandinn mun svífa yfir! Sjáumst á hvalasafninu 26. Nóvember nk. í jólaskapi!

==================

If you have any questions or want Iceland travel advice please get in touch.